2014-05-12 23:45:00 CEST

2014-05-12 23:45:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
HS Orka hf. - Ársreikningur

HS Orka hf. leggur fram árshlutareikning fyrir fyrsta ársfjórðung 2014


Stjórn HS Orku hf samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins
fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2014. Árshlutareikningurinn er gerður í
samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum.
Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is 

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

  -- Rekstartekjur fyrirtækisins námu 1.899 milljónum á tímabilinu, samanborið
     við 1.947 m.kr. á sama tímabili 2013. Hagnaður tímabilsins af reglulegri
     starfsemi nam 90 m.kr. samanborið við 910 m.kr. tap á sama tímabili 2013.
     Heildarhagnaður var 75 m.kr, samanborið við 942 m.kr. tap á sama tímabili
     2013.
  -- EBITDA er alls um 828 m.kr. fyrstu þrjá mánuði 2014 en var 781 m.kr. á sama
     tímabili 2013.

  -- Eiginfjárhlutfall 31. mars 2014 var mjög sterkt eða 58,0% og er óbreytt frá
     árslokum 2013.
  -- Reiknaðir fjármagnsliðir höfðu afgerandi áhrif á afkomu fyrirtækisins eins
     og oft áður.  Þar vegur þyngst breyting á virði afleiða (framtíðarvirði
     orkusölusamninga sem tengjast álverði) sem er neikvætt 708 m.kr. en var
     neikvætt um 2.755 m.kr. á sama tímabili á árinu 2013.  Á móti vegur 226
     m.kr. gengishagnaður á árinu 2013, á tímabilinu en á sama tímabili í fyrra
     var þessi hagnaður 936 m.kr.
  -- Regluleg starfsemi fyrirtækisins gengur vel og hækkaði EBITDA samanborið
     við sama tímabil í fyrra um 6% eða sem nam 82 m.kr. á milli sömu tímabila.
     Tekjur lækkuðu um 2% á milli tímabila eða um 47 m.kr. og námu 1.899 m.kr.,
     en voru 1.947 m.kr. fyrstu þrjá mánuðina 2013. Á móti lækkaði
     rekstrarkostnaður um 6% eða sem nemur 82 m.kr. milli sömu tímabila. Megin
     ástæðan fyrir þessari lækkun tekna var lækkun álverðs en á móti kom að
     tekjur hafa aukist talsvert á smásölumarkaði og tekjur af sölu á heitu
     vatni hafa einnig aukist. Á kostnaðarhliðinni hefur rekstrarkostnaður
     orkuvera og flutningskostnaður lækkað, orkukaup hafa  aukist lítillega. Þá
     hefur skrifstofu og stjórnunarkostnaður lækkað, fyrst og fremst vegna
     kostnaðar við gerðardómsmál vegna orkusölusamnings við Norðurál á
     Grundartanga sem var umtalsverður fyrstu þrjá mánuði 2013 en er ekki til
     staðar 2014.

Frekari upplýsingar veitir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku hf, í síma 855
9301.