2015-03-05 12:50:41 CET

2015-03-05 12:51:42 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Nýr regluvörður og fjárfestatengill hjá Reginn hf.


Björg Jóhannesdóttir hefur verið ráðin lögfræðingur fasteignafélagsins Reginn
hf. og mun jafnframt verða nýr regluvörður félagsins. Er þetta ráðstöfun af
hálfu félagsins í kjölfar aukinna umsvifa hjá félaginu samhliða stækkun og
aukinnar áherslu á að styrkja og auka sjálfstæði í regluvörslu með löglærðum
aðila. 

Björg mun jafnframt verða ritari stjórnar og fjárfestatengill félagsins.

Björg er með embættispróf í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands og hlaut
málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2007. Þá lauk Björg LL.M gráðu frá
háskólanum í Edinborg árið 2013. Björg starfaði áður hjá Slitastjórn Kaupþings
hf. og á lögfræðisviði Kaupþings banka hf. frá árinu 2008. Þá starfaði Björg
sem aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness á árunum 2006 til 2008.