2014-10-13 11:26:56 CEST

2014-10-13 11:27:56 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Icelandair Group semur um byggingu nýs hótels í miðbæ Reykjavíkur


Icelandair Hotels, dótturfélag Icelandair Group, mun opna nýtt lúxushótel í
miðbæ Reykjavíkur í ársbyrjun 2016. Hótelið verður staðsett að Hafnarstræti
17-19 en fasteignin verður endurbyggð frá grunni. Það verða 70 herbergi á
hótelinu. Megin kostir hótelsins eru staðsetningin í miðbæ Reykjavíkur auk þess
sem hægt er að hanna fasteignina frá grunni eftir þörfum hótelsins. 

Þessi viðbót ásamt Icelandair hótel Reykjavík Kultura, sem verður við
Hverfisgötu, og stækkun Icelandair hótel Reykjavík Marina við Reykjavíkurhöfn
er í takt við stefnu félagsins um að sækja markvisst betur borgandi farþega til
landsins og leitast þannig við að auka arðsemi félagsins og ferðaþjónustunnar
almennt. 

Verkefnið verður unnið í samvinnu við Suðurhús, sem er eigandi fasteignarinnar
og mun stýra framkvæmdum. Icelandair Hotels mun leigja fasteignina til 20 ára. 



Frekari upplýsingar veitir:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801