2017-05-04 10:45:30 CEST

2017-05-04 10:45:30 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Ármann Þorvaldsson ráðinn forstjóri Kviku


Fréttatilkynning
4. maí 2017


Ármann Þorvaldsson ráðinn forstjóri Kviku

Ármann  Þorvaldsson hefur verið  ráðinn forstjóri Kviku  banka hf. og Marinó Örn
Tryggvason aðstoðarforstjóri bankans.

Ármann  hefur starfað hjá  Virðingu frá árinu  2015, síðast sem framkvæmdastjóri
fyrirtækjaráðgjafar.   Áður   var   hann   framkvæmdastjóri  fyrirtækjaráðgjafar
Kaupþings frá 1997 til 2005 og framkvæmdastjóri Kaupþings Singer & Friedlander í
Bretlandi  frá  2005 til  ársins  2008. Áður en  Ármann  hóf  störf hjá Virðingu
starfaði  hann  sem  framkvæmdastjóri  hjá  fasteignalánafélaginu  Ortus Secured
Finance  í London. Ármann útskrifaðist með  MBA gráðu frá Boston University árið
1994 og er með BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands.

Marinó  hefur starfað hjá eignastýringu Arion banka og forvera bankans frá árinu
2002, síðast  sem aðstoðarframkvæmdastjóri eignastýringar frá 2014. Marinó sat í
stjórn  Varðar Trygginga frá  2016 til 2017. Marinó er  með BSc í viðskiptafræði
frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Ármann  tekur  til  starfa  hjá  Kviku  15. júní næstkomandi og Marinó 1. ágúst.
Magnús  Ingi Einarsson framkvæmdastjóri fjármála-  og rekstrarsviðs Kviku verður
staðgengill forstjóra þar til Ármann kemur til starfa.

Magnús  hefur starfað hjá Kviku  og forverum bankans frá  árinu 2006 er hann hóf
störf  í áhættustýringu. Fram til loka  árs 2014 gegndi hann stöðu forstöðumanns
útlánaáhættu,  áhættustýringar  og  fjárstýringar.   Frá  þeim  tíma  hefur hann
starfað  sem framkvæmdastjóri  fjármála- og  rekstrarsviðs. Magnús  er með BSc í
vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og MSc gráðu í vélaverkfræði frá Virginia Tech
í Bandaríkjunum.


Um Kviku banka hf.

Kvika  er eini sjálfstæði og sérhæfði fjárfestingabanki landsins. Bankinn sinnir
þörfum   viðskiptavina   á   afmörkuðum   syllum  með  fagþekkingu  og  sérhæfðu
vöruframboði.  Burðarás Kviku er öflug eignastýring og veitir bankinn sparifjár-
og innlánseigendum alhliða fjármálaþjónustu.

Hjá  Kviku  starfar  samhentur  hópur  83 sérfræðinga  sem  nær árangri í krafti
menntunar,  markaðsþekkingar og víðtækrar reynslu.  Eignarhald Kviku er gagnsætt
og  er hann eini bankinn  sem er að fullu  í eigu einkaaðila s.s. lífeyrissjóða,
fyrirtækja og einstaklinga. Nánar á: www.kvika.is.

[]