|
|||
![]() |
|||
2016-02-25 12:44:58 CET 2016-02-25 12:44:58 CET REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - FyrirtækjafréttirNiðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboðiLánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150434 og LSS151155 þann 24. febrúar 2016. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 26. febrúar 2016. Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 680.000.000 á bilinu 3,09% - 3,21%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 380.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,14%. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í LSS150434 fyrir ISK 18.000.000. Heildarmagn seldra bréfa í flokki LSS150434 nemur því að nafnvirði ISK 398.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,14%. Útistandandi fyrir voru ISK 20.141.352.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 20.539.352.565. Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 380.000.000 á bilinu 2,99% - 3,14%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 280.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,09%. Að þessu sinni var orðið við beiðni um kaup á ISK 28.000.000 til viðbótar í LSS151155. Heildarmagn seldra bréfa í flokki LSS151155 nemur því að nafnvirði ISK 308.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,09%. Útistandandi fyrir voru ISK 639.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 919.000.000. Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson Sími: 515 4947 e-mail: egill@lanasjodur.is |
|||
|