2009-07-23 02:41:56 CEST

2009-07-23 02:42:56 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Atorka Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Eignir Atorku verða ekki seldar


Undanfarna mánuði hafa átt sér stað viðræður um möguleika á fjárhagslegri
endurskipulagningu Atorku Group. Sérfræðingar hafa lagt mat á virði eignasafns
Atorku og líklega þróun verðmætis þess á næstu árum. Niðurstöður þeirra
staðfesta að skynsamlegt sé að vinna áfram að því að hámarka virði eigna Atorku
á næstu árum. Fyrir liggur hins vegar að eigið fé félagsins telst neikvætt.
Hafa lánardrottnar félagsins því gert kröfu um að hlutafé núverandi hluthafa
verði fært niður, samhliða yfirtöku á félaginu á grundvelli nauðasamninga. 


Nánari uppl. veitir Garðar Gíslason, lögmaður Atorku í s. 896-2668