2014-01-10 14:31:45 CET

2014-01-10 14:32:46 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útgáfudagar fyrir lánshæfismat ríkissjóðs


Matsfyrirtækjunum  Standard & Poors, Moody´s og Fitch er gert að birta
dagsetningar fyrir útgáfu á lánshæfismati aðildarríkja Evrópusambandsins,
samanber reglugerð númer 462/2013. Þessi reglugerð miðar að því meðal annars að
auka gagnsæi í starfsemi matsfyrirtækja, bæta matsferlið og auka ábyrgð
fyrirtækjanna á lánshæfismati sem hefur sýnt sig að hafa mikil áhrif á lánskjör
sem ríkissjóðir aðildarríkja Evrópusambandsins njóta.  Reglugerðin gildir 
fyrir ríki á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en þessi reglugerð ásamt nokkrum
nýjum reglum um fjármálaeftirlit og fleira (sbr. t.d. reglugerð númer
1095/2010) hefur að vísu ekki verið formlega innleidd í EES-ríkjunum.
Birtingaráætlunin er alfarið á ábyrgð matsfyrirtækjanna sjálfra. Matsfyrirtækin
hafa birt dagsetningar 2014 fyrir Ísland sem hér segir: 



Matsfyrirtæki  Dagsetning 
--------------------------
S&P            24. janúar 
--------------------------
Fitch          7. febrúar 
--------------------------
Moody´s        14. mars   
--------------------------
Moody´s        11. júlí   
--------------------------
S&P            18. júlí   
--------------------------
Fitch          1. ágúst   
--------------------------
Moody´s        7. nóvember
--------------------------