|
|||
2009-06-18 11:46:32 CEST 2009-06-18 11:47:31 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirÍbúðalánasjóður - VaxtaákvörðunSamkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum, og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi. Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 16.júní s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,14%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%. Íbúðalánasjóður hefur því í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að lækka útlánavexti sjóðsins sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,60% og 5,10% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 18. júní 2009. |
|||
|