2012-10-01 18:02:52 CEST

2012-10-01 18:03:53 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Skiptigengi í gjaldeyrisútboði


Samkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 5.september  sl. varðandi
gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 3. október nk.  kom fram í
útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í
tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki „RIKS 33 0321“ yrði birt í lok dags
1. október. 

Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra
skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er
109,154248 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum
(e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 5. október 2012 (ávöxtunarkrafa 2,65%)1 

Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100).







1Hreint verð (e. clean price) er 105,5.

Skiptigengi_RS33.pdf