|
|||
2013-11-12 17:29:57 CET 2013-11-12 17:30:58 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumBreyting á stjórn ÍbúðalánasjóðsFélags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað Hauk F. Leósson sem varaformann stjórnar Íbúðalánasjóðs. Haukur er fæddur 30. október 1937. Hann vann hjá N. Mancher og Co, Endurskoðun, sem síðar varð PWC, frá 1957 til 1968. Hjá Landsvirkjun vann hann við fjárhagsáætlanir og sem aðalbókari frá 1969 til 1984 og frá 1985 til 2005 sem skrifstofustjóri Endurskoðunar hf, sem síðar varð KPMG ehf., og vann þar við gerð ársreikninga og skattframtala. Haukur vann sem framkvæmdastjóri Húsmúla, fasteignafélags frá 2006 til 2007. Haukur sat í Innkauparáði Reykjavíkurborgar frá 1998 til 2006. Í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins sat hann í stjórn frá 2006 til 2010. Í stjórn AP almannatengsla ehf sat hann í stjórn frá 2006 til 2009 og í stjórn Orkuveitunnar sat hann í stjórn frá 2006 til 2007. |
|||
|