2016-02-10 10:10:12 CET

2016-02-10 10:10:12 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

Eik fasteignafélag hf. : Undirritun kaupsamnings á Heimshótelum ehf. (Hótel 1919)


Í tilkynningu Eikar fasteignafélags hf. þann 14. október sl. kom fram að félagið
hefði undirritað kauptilboð um kaup félagsins á öllu útgefnu hlutafé Heimshótela
ehf.

Í  dag, 10. febrúar  2016, hefur kaupsamningur  verið undirritaður um ofangreind
viðskipti.  Umsamið kaupverð  er 3,6 milljarðar  króna (Enterprise  value) fyrir
allt útgefið hlutafé í Heimshótelum ehf., að teknu tilliti leiðréttinga samkvæmt
skilmálum  kaupsamningsins,  þ.e.  framangreint  kaupverð  miðast við að (i) við
afhendingu  sé félagið og Hótel 1919 ehf. skuldlaus  og (ii) að til staðar séu í
félaginu  110 m.kr. sem munu nýtast  til betrumbóta á hótelinu. Kaupsamningurinn
er  háður fyrirvara um samþykki  Samkeppniseftirlitsins, Seðlabanka Íslands, þar
sem seljandi er erlendur aðili, og Rezidor Hotels ApS.

Fasteignirnar  sem um ræðir og eru í eigu Heimshótela ehf. eru Pósthússtræti 2,
Tryggvagata  28 og Hafnarstræti  9-11 í Reykjavík.  Allt hlutafé  í Hóteli 1919
ehf.,  sem er 100% í eigu Heimshótela ehf., er hluti af kaupverðinu. Hótel 1919
ehf.  er með langtímarekstrarsamning við  alþjóðlegu hótelkeðjuna Rezidor Hotels
ApS  um rekstur hótelsins  undir nafni Radisson  Blu. Rekstrarsamningurinn felur
það  í sér að Rezidor Hotels stýrir og hefur eftirlit með rekstri hótelsins gegn
tiltekinni  þóknun  en  hagnaður  félagsins  rennur  að  öðru  leyti  til Eikar.
Rekstrarsamningur af þessu tagi er lítt þekktur meðal fasteignaeigenda á Íslandi
en er algengt rekstrarform meðal fasteignaeigenda erlendis.

Fasteignirnar  eru  tæpar  6 þúsund  fermetrar  að  stærð og staðsettar í hjarta
Reykjavíkur.  Þar  sem  tekjur  Heimshótela  ehf.  ráðast  m.a.  af verðlagningu
hótelherbergja og herbergisnýtingu Hótels 1919 ehf. munu sveiflur verða á EBITDA
félagsins. Áætlað er að "yield" kaupanna  verði um 8% við afhendingu.

Kaupin  verða fjármögnuð með lántöku og handbæru fé félagsins. Félagið mun birta
rekstrarspá  síðar í  febrúar fyrir  árið 2016 þar  sem tekið  verður tillit til
tekna vegna Heimshótela.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri:

"Það  er ánægjuefni  að tilkynna  að ritað  hafi verið  undir kaupsamning á öllu
hlutafé   Heimshótela   ehf.  Um  er  að  ræða  frábæra  eign  á  besta  stað  í
höfuðborginni.  Með kaupum á Heimshótelum ehf. (Hótel 1919) mun Eik eiga flestar
fasteignir  á reitnum sem afmarkast af  Hafnarstræti, Tryggvagötu og Naustinu og
passar því eignin einstaklega vel í eignasafn Eikar. "



Nánari upplýsingar veitir:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200 / 861-3027.


[HUG#1984927]