2014-11-24 09:43:18 CET

2014-11-24 09:44:19 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup VÍS á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun. Kaupum skv. endurkaupaáætlun lokið.


Í 47. viku 2014 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. („VÍS“) 1.592.830 eigin     
 hluti fyrir kr. 14.080.617 eins og hér segir:                                  
Dagsetnin   Tími    Keyptir    Viðskiptave   Kaupverð   Eigin hlutir Vís eftir  
    g                hlutir         rð                         viðskipti        
--------------------------------------------------------------------------------
21.11.201  14:00   1.592.830      8,84      14.080.61         55.276.524        
    4                                           7                               
 Samtals           1.592.830                14.080.61                           
                                                7                               
--------------------------------------------------------------------------------

Vísað er til tilkynningar Vátryggingafélags Íslands hf. til Aðalmarkaðar um
framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka
útgefið hlutafé þess, dags. 16. maí 2014. Eins og greint var frá í þeirri
tilkynningu var áætlað að kaupa að hámarki  2,2% af útgefnu hlutafé félagsins
eða sem samsvarar að nafnverði  kr. 55.000.000 hlutum. Samkvæmt áætluninni 
skyldi fjárhæð endurkaupanna þó ekki verða hærri en 500 milljónir króna.
Reglubundnar tilkynningar til markaðarins um kaup VÍS á eigin bréfum hafa 
upplýst um framgang kaupanna. 

Heimild til endurkaupa gilti fram að aðalfundi félagsins 2015.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar VÍS er nú lokið. Samtals hafa verið keyptir kr.
55.000.000 hlutir að nafnverði í félaginu og nemur kaupverð hinna keyptu hluta
samtals kr. 462.808.526. Endurkaupáætlunin var framkvæmd í samræmi við II.
kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. 

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og
í netfangi: fjarfestatengsl@vis.is.