2011-11-21 15:25:00 CET

2011-11-23 15:26:12 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjanesbær - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2012


Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2012 verður lögð fyrir bæjarstjórn til
fyrri umræðu þriðjudaginn 22. nóvember. 

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2012 gerir ráð fyrir að
rekstrarafgangur fyrir afskriftir og fjármagnsliði verði um 502,5 m.kr fyrir
bæjarsjóð og 2.515,4 m.kr fyrir samstæðu. Rekstrarafgangur bæjarsjóðs, að teknu
tillitit til afskrifta og fjármagnsliða, verður um 72,5 m.kr. og halli samstæðu
verður um 613,4 m.kr. 

Veltufjárhlutfall hækkar í 1,4 fyrir bæjarsjóð og í 1,73 fyrir samstæðu.
Eiginfjárhlutfall bæjarsjóðs hækkar og verður 25,50% og fyrir samstæðu 20,46%. 

Veltufé frá rekstri er áætlað um 384,2 m.kr. fyrir bæjarsjóð og um 1.637 m.kr.
fyrir samstæðu. 
Handbært fé bæjarsjóðs í árslok er áætlað 1.187,8 m.kr og fyrir samstæðu
1.817,9 m.kr. 


Eignir pr. íbúa eru áætlaðar 2.054 þús.kr. fyrir bæjarsjóð og 3.306 þús.kr
fyrir samstæðu. Skuldir pr. íbúa eru áætlaðar 1.530 þús.kr fyrir bæjarsjóð og
2.630 fyrir samstæðu.