|
|||
2008-10-28 06:20:00 CET 2008-10-28 06:41:14 CET REGULATED INFORMATION Össur hf. - ÁrsreikningurUppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2008Helstu niðurstöður fyrir þriðja ársfjórðung 2008 * Sala var 87,3 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 6% frá sama tímabili 2007. * EBITDA var 21,1 milljón Bandaríkjadala, jókst um 50% frá sama tímabili 2007. * EBITDA hlutfall var 24%, samanborið við 17% á sama tíma í fyrra. * Hagnaður tímabilsins var 13,7 milljónir Bandaríkjadala, samanborið við 2,2 milljónir á sama tímabili 2007. * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut að teknu tilliti til kauprétta var 4,60 bandarísk sent, samanborið við 2,10 sent á sama tímabili 2007. * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 3,24 bandarísk sent, samanborið við 0,56 sent á sama tímabili í fyrra. Helstu niðurstöður fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2008 * Sala var 269,9 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 8% frá sama tímabili 2007. * EBITDA var 63,1 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 52% frá sama tímabili 2007. * EBITDA hlutfall var 23%, samanborið við 17% á sama tímabili 2007. * Hagnaður tímabilsins var 24,3 milljónir Bandaríkjadala, samanborið við 900 þúsund dali á sama tímabili 2007. * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut að teknu tilliti til kauprétta var 10,0 bandarísk sent, samanborið við 4,94 sent á sama tímabili í fyrra. * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 5,75 bandarísk sent, samanborið við 0,24 sent á * sama tímabili í fyrra. Jón Sigurðsson, forstjóri:"Við erum ánægð með niðurstöður þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánuði ársins. Okkur hefur tekist að auka arðsemi rekstursins ágætlega þrátt fyrir að söluvöxtur hafi verið hægari en áætlað var. Á síðustu tveimur árum höfum við lagt ríka áherslu á innleiðingarferli og sameiningu til þess að byggja upp sterkt fyrirtæki á sviði stoð- og stuðningstækja. Í dag eru tekjur félagsins dreifðar og gott jafnvægi er milli Bandaríkjanna og Evrópu. Fjárhagslegur styrkur Össurar er góður og er eiginfjárhlutfallið 43%. Við gerum ekki ráð fyrir að sveiflur á fjármálamörkuðum muni hafa veruleg áhrif á rekstur félagsins þar sem Össur starfar innan heilbrigðisgeirans. Þegar á heildina er litið teljum við að okkur hafi tekist að byggja upp sterkt fyrirtæki og byggja góðan grunn fyrir framtíðarvöxt" Live comments form the CEO, see link here below: www.ossur.com/ceocomments The press release including tables, the Market Presentation Q3 2008 and the Financial Statement Q3 2008 can be downloaded from the following links: |
|||
|