2014-08-18 14:35:07 CEST

2014-08-18 14:36:08 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Farice ehf. - Ársreikningur

Árshlutauppgjör Farice fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2014


Batnandi afkoma Farice fyrri hluta árs 2014.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) jókst um 10,4% frá
sama tíma á fyrra ári og nam 3.6 milljónum evra.  Heildartekjur námu 6,6
milljónum evra og jukust um 8,7% frá fyrra ári.  Heildarkostnaður jókst um
6,6%.  Eiginfjárhlutfall var 43,4% 30.júní s.l. 

Fjármagnskostnaður var 2,9 milljónir evra, þar af er 1,1 milljón evra reiknaður
gengismunur vegna styrkingar íslensku krónunnar en helsta lán félagsins er í
íslenskum krónum.  Afskriftir námu 3,7 milljónum evra.  Tap félagsins varð 2,9
milljónir evra og minnkaði um 1,6 milljónir evra. 



Frekari upplýsingar:

Ómar Benediktsson 585 9701