2017-03-29 19:25:47 CEST

2017-03-29 19:25:47 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Niðurstöður hluthafafundar

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstöður aðalfundar Eikar fasteignafélags hf.


Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. var haldinn miðvikudaginn 29. mars 2017 á
19. hæð í Turninum, Smáratorgi 3.
Tillögur stjórnar sem lágu fyrir fundinn má finna á
www.eik.is/fjarfestar/hluthafar
1.       Ársreikningur
Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2016.
2.       Ráðstöfun hagnaðar félagins á rekstrarárinu 2016
Aðalfundur samþykkti tillögur stjórnar um að greiða út 930.000.000 kr. í arð.
Arðsákvörðunardagur er 29. mars 2017 sem þýðir að skráðir hluthafar í lok dags
31. mars 2017 (arðsréttindadagur) eiga rétt á arðgreiðslu. Arðleysisdagur er því
30. mars 2017 sem er fyrsti viðskiptadagur eftir arðsákvörðunardag og
útborgunardagur er 27. apríl 2017.
3.       Starfskjarastefna félagsins
Aðalfundur samþykkti breytingar á starfskjarastefnu félagsins, með
breytingatillögum sem komu fram á fundinum.
4.       Samþykktir félagsins
Aðalfundur samþykkti breytingar á samþykktum félagsins, eins og þær voru lagðar
fyrir fundinn.
5.       Kjör stjórnar og ákvörðun um þóknun til stjórnar fyrir störf þeirra
fyrir komandi starfsár
Eftirtaldir aðilar voru kosnir í stjórn félagsins:
-      Agla Elísabet Hendriksdóttir
-      Arna Harðardóttir
-      Eyjólfur Árni Rafnsson
-      Frosti Bergsson
-          Guðrún Bergsteinsdóttir
Aðalfundur samþykkti að stjórnar og nefndarlaun verði:
Laun hvers stjórnarmanns nemi  3000.000 kr. á mánuði og stjórnarformaður fái
greidd tvöföld laun eða 600.000 kr. á mánuði.
Laun nefndarmanna í starfskjaranefnd verði 240.000 kr. á ári og laun formanns
starfskjaranefndar verði 360.000 kr. á ári.
Laun nefndarmanna endurskoðunarnefndar verði 19.800 kr. auk vsk. fyrir hvern
unninn tíma og að formaður nefndarinnar fái 24.000 kr. auk vsk. fyrir hvern
unninn tíma en þó skal aldrei greiða nefndarmönnum endurskoðunarnefndar á
ársgrundvelli meira en sem nemur 20 tímum á hvern nefndarmann.
6.       Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
Aðalfundur samþykkti að KPMG ehf. yrði endurkjörið endurskoðunarfélag Eikar
fasteignafélags hf.
7.       Önnur mál sem löglega eru fram borin
Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum og var honum slitið kl
17:00.

[]