2013-02-18 10:04:21 CET

2013-02-18 10:05:22 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsvirkjun - Ársreikningur

Moody‘s breytir horfum á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr neikvæðum í stöðugar


Matsfyrirtækið Moody's hefur breytt horfum á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr
neikvæðum í stöðugar.  Samsvarandi breyting á horfum átti sér stað hjá
Ríkissjóði Íslands þann 7. febrúar síðastliðinn. 

Að mati Moody´s endurspeglar breytingin að það hafi dregið úr óvissu sem fylgdi
úrskurði EFTA-dómstólsins í janúar síðastliðinn og almennt bættar
efnahagshorfur á Íslandi. 





Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs,
í síma 515-9000, netfang: rafnar@lv.is.