|
|||
2014-10-14 17:32:35 CEST 2014-10-14 17:33:35 CEST REGULATED INFORMATION HB Grandi hf. - FyrirtækjafréttirHB Grandi - Yfirlýsing stjórnar vegna ákæru á hendur stjórnarmanniVegna framkominnar ákæru á hendur Rannveigu Rist telur stjórn HB Granda hf. ekki ástæðu til að gera athugasemdir við áframhaldandi stjórnarstörf hennar fyrir félagið. Nýtur Rannveig fulls trausts stjórnarinnar. Meginregla íslensks réttarfars er að hver maður skuli teljast saklaus þar til sekt hans sé sönnuð og það mat er í höndum dómstóla. Því telur stjórn HB Granda hf. að ekki sé tilefni til sérstakra viðbragða og ítrekar að hún beri fullt traust til Rannveigar. |
|||
|