2008-10-30 15:42:22 CET

2008-10-30 15:43:21 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Exista hf. - Niðurstöður hluthafafunda

Niðurstöður hluthafafundar Exista haldinn 30. október 2008


Hluthafafundur Exista hf. var haldinn í dag 30. október 2008. Fyrir fundinn
voru lagðar eftirfarandi tillögur, sem allar voru samþykktar: 


1. EFTIRFARANDI TILLAGA UM BREYTINGU Á 2. MGR. 4. GR. SAMÞYKKTA FÉLAGSINS UM
HEIMILD STJÓRNAR TIL HÆKKUNAR HLUTAFJÁR VAR SAMÞYKKT: 

Stjórn félagsins er heimilt að auka hlutafé þess um allt að 50.000.000.000
króna að nafnverði eða jafngildi þeirrar fjárhæðar í evrum, með áskrift allt að
50.000.000.000 nýrra hluta. Hlutahafar falla frá forgangsrétti sínum skv. 34.
gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög og samkvæmt samþykktum þessum.    Stjórn
félagsins er þó heimilt að veita einstökum hluthöfum á hverjum tíma heimild til
að skrá sig fyrir nýjum hlutum að hluta eða öllu leyti. Engar hömlur eru á
viðskiptum með hina nýju hluti. Nýir hlutir skulu vera í sama flokki og með
sömu réttindi og aðrir hlutir í félaginu. Þeir skulu veita réttindi í félaginu
frá skrásetningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Stjórn félagsins er falið að
ákveða nánari útfærslu á hækkun þessari m.t.t. verðs og greiðsluskilmála.
Stjórn félagsins er heimilt að ákveða að áskrifendur greiði fyrir hina nýju
hluti að hluta eða öllu leyti með öðru en reiðufé. Heimild þessi gildir til 30.
október 2013 að svo miklu leyti sem hún hefur ekki verið nýtt fyrir það
tímamark. 

2. EFTIRFARANDI TILLAGA UM BREYTINGU Á 3. MGR. 4. GR. SAMÞYKKTA FÉLAGSINS UM
HEIMILD STJÓRNAR FYRIR HÖND FÉLAGSINS AÐ UNDIRGANGAST FJÁRSKULDBINDINGAR SEM
BREYTA MÁ Í HLUTAFÉ Í FÉLAGINU OG HEIMILD TIL HÆKKUNAR HLUTAFJÁR Í SAMRÆMI VIÐ
ÞAÐ VAR SAMÞYKKT: 

Stjórn félagsins er heimilt að taka lán fyrir hönd félagsins eða að gangast
undir annars konar fjárhagslega skuldbindingu allt að samanlagðri fjárhæð kr.
7.087.383.816, sem breyta má í hluti í félaginu, en að því gefnu að
heildarfjöldi hluta í félaginu sem mögulegt er að gefa út við nýtingu
breytiréttar að fullu,  skuli ekki nema meira en 50% af útgefnu hlutafé
félagsins á útgáfudegi slíkra lána eða fjárhagslegra skuldbindinga. Stjórn
félagsins er heimilt að hækka hlutafé félagsins um samsvarandi fjárhæð og
breytiréttur nemur, þrátt fyrir heimild samkvæmt 2. mgr. 4. gr., og mun frekar
ákveða hvernig heimild þessari verður beitt í samræmi við ákvæði 3., 4., og 5.
mgr. 48. gr. og 41. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Hluthafar afsala sér
forgangsrétti til áskriftar á hlutum sem gefnir kunna að verða út vegna þessa
ákvæðis. Stjórn félagsins er heimilt að kveða á um að unnt sé að greiða lán eða
fjárhagslega skuldbindingu með öðrum verðmætum en reiðufé. Heimild þessi gildir
til 30. október 2013 að svo miklu leyti sem hún hefur ekki verið nýtt fyrir það
tímamark. 

3. EFTIRFARANDI TILLAGA UM BREYTINGU Á 1. MGR. 7. GR. SAMÞYKKTA FÉLAGSINS UM
HEIMILD STJÓRNAR TIL KAUPA Á EIGIN BRÉFUM VAR SAMÞYKKT:
Félagið má eigi veita lán út á hluti sína nema lög leyfi.  Félagsstjórn skal
heimilt á næstu 18 mánuðum frá 30. október 2008 að telja að kaupa allt að 10%
af eigin hlutum. Kaupverð hlutanna skal ekki vera lægra en 0,01 kr á hlut og
ekki hærra en 40 kr. á hlut. Ekki eru sett lágmörk á heimild þessa varðandi
stærð hluta sem keyptir eru hverju sinni. 

4. EFTIRFARANDI TILLAGA UM AFSKRÁNINGU HLUTA FÉLAGSINS ÚR KAUPHÖLL NASDAQ OMX
NORDIC EXCHANGE Á ÍSLANDI VAR SAMÞYKKT: 

Hluthafafundur Exista hf. haldinn 30. október 2008 samþykkir að hlutir í
félaginu verði tafarlaust afskráðir úr kauphöll NASDAQ OMX Nordic Exchange á
Íslandi. Hluthafafundur beinir því til stjórnar og veitir heimild til þess að
annast slíka afskráningu. 

5. EFTIRFARANDI TILLAGA UM HEIMILD STJÓRNAR TIL ÓTAKMARKAÐRAR SÖLU Á EIGNUM
FÉLAGSINS VAR SAMÞYKKT: 

Hluthafafundur Exista hf. haldinn 30. október 2008 samþykkir, vegna verulegra
efnahagslegra erfiðleika í þjóðfélaginu, að veita stjórn félagsins ótakmarkaða
heimild til þess að selja eða ráðstafa allt að öllum eignum félagsins, með
einni eða fleiri ráðstöfunum, hvort sem um er að ræða lausafé eða aðrar eignir
félagsins svo sem fasteignir, hlutabréf, og aðrar eignir, að því gefnu að
slíkar ráðstafanir séu að vandlegu mati hagstæðar og hagfelldastar félaginu.
Heimild þessi gildir til 30 október 2009. 


Frekari upplýsingar veitir:
Samskiptasvið Exista
Sigurður Nordal
Framkvæmdastjóri
Sími: 560 8620
ir@exista.com