2025-03-20 19:33:45 CET

2025-03-20 19:33:45 CET


REGULATED INFORMATION

English
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Other information disclosed according to the rules of the Exchange

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða aðalfundar


Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. var haldinn bæði rafrænt og með hefðbundnum hætti 20. mars 2025 kl. 16:00.

Helstu niðurstöður fundarins:

1.  Ársreikningur 2024 lagður fram til afgreiðslu

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2024.

2.  Ákvörðun um greiðslu arðs

Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar sem hljóðaði svo: „Stjórn sjóðsins leggur til að á árinu 2025 verði ekki greiddur út arður vegna afkomu 2024 til hluthafa til að styrkja stöðu sjóðsins og tryggja vöxt eigin fjár.“

3.  Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum Lánasjóðsins

Engar tillögur lágu fyrir fundinum.

4.  Tillaga um starfskjarastefnu

Starfskjarastefna var samþykkt en engar breytingar eru á starfskjarastefnunni frá fyrra ári.

5.  Kosning stjórnar skv. 15 gr. samþykkta félagsins

Í stjórn félagsins voru kjörin:

Aðalmenn:

· Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, var sjálfkjörinn formaður stjórnar

· Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum

· Halldóra Káradóttir, sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar

· Guðmundur B. Guðmundsson, fyrrum formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar

· Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík

Varamenn:

· Helgi Hlynur Ásgrímsson, sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþing

· Jóhanna Ösp Einarsdóttir, oddviti Reykhólahrepps

· Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings

· Grímur R. Lárusson, sveitarstjórnarfulltrúi í Húnabyggð 

· Fjóla St. Kristinsdóttir, sveitarstjóri Grímsness- og Grafningshrepps

6.  Kosning tilnefningarnefndar

Í tilnefningarnefnd voru kosin:

· Magnús B. Jónsson, formaður

· Aldís Hafsteinsdóttir

· Þórdís Lóa Þórhallsdóttir 

7.  Kosning utanaðkomandi fulltrúa í endurskoðunarnefnd

Þórdís Sveinsdóttir var kosin utanaðkomandi fulltrúi í endurskoðunarnefnd

8.  Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis

Aðalfundur kaus endurskoðunarfyrirtækið KPMG sem endurskoðanda félagsins fyrir árið 2025.

9.  Tillaga um laun stjórnar og undirnefndar stjórnar

Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um stjórnarlaun þannig að stjórnarlaun verði kr. 205.960 fyrir hvern mánuð og taki breytingum miðað við launavísitölu 1. janúar n.k. Laun varaformanns verða 1,25-föld mánaðarlaun stjórnarmanna og laun formanns verða 1,5-föld mánaðarlaun stjórnarmanna. Varamenn í stjórn skulu fá laun fyrir hvern setinn fund, sem eru jöfn mánaðarlaunum stjórnarmanns.

Önnur mál voru ekki borin upp.


Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949