|
|||
![]() |
|||
2017-12-11 17:15:00 CET 2017-12-11 17:15:31 CET REGULATED INFORMATION Skeljungur hf. - Viðskipti félags með eigin bréfSkeljungur hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 49. viku 2017, keypti félagið 14.988.600 eigin hluti fyrir 101.822.556 kr. eins og hér segir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð 5.12.2017 14:32:11 4.996.200 6,88 34.373.856 6.12.207 14:59:10 4.996.200 6,8 33.974.160 7.12.2017 14:13:32 4.996.200 6,7 33.474.540 Samtals 14.988.600 101.822.556 ------------------------------------------------------------ Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. nóvember 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 7. nóvember 2017. Skeljungur hefur nú keypt samtals 59.954.400 hluti í félaginu sem samsvarar 27,86% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 431.321.946 krónum sem samsvarar 61,62% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Skeljungur á nú samtals 59.954.400 hluti eða 2,78% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 215.203.185 hlutir, þ.e. 10% eigin fjár, en fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en 700 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög nr. 2/1995 um hlutafélög og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, fjarfestar@skeljungur.is, s: 840-3071. [] |
|||
|