|
|||
2014-06-10 17:31:00 CEST 2014-06-10 17:31:02 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 14 0915 og RIKV 14 1215Fimmtudaginn 12. júní kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 14 0915 og RIKV 14 1215 sem eru með gjalddaga 15. september og 15. desember 2014. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 16. júní 2014. Sótt verður um að RIKV 14 1215 verði tekin til viðskipta í NASDAQ OMX á Íslandi miðvikudagur 18. júní 2014. Nánari upplýsingar veitir Laufey Birna Ómarsdóttir, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|