2022-08-10 18:14:57 CEST

2022-08-10 18:14:57 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Landsbankinn gefur út skuldabréf í norskum krónum


Landsbankinn lauk í dag sölu á skuldabréfum með breytilegum vöxtum til þriggja ára að fjárhæð 350 milljónir norskra króna. Gert er ráð fyrir að skuldabréfin fái lánshæfiseinkunnina BBB frá S&P Global Ratings. Skuldabréfin voru seld á kjörum sem jafngilda 235 punkta álagi á þriggja mánaða millibankavexti í norskum krónum.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans og er stefnt að töku skuldabréfanna til viðskipta á Euronext Dublin þann 18. ágúst 2022.

Umsjónaraðili sölunnar var Swedbank.