|
|||
![]() |
|||
2013-05-06 19:10:39 CEST 2013-05-06 19:11:40 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirFlutningatölur apríl 2013Í apríl flutti félagið 148 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 9% fleiri en í apríl á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 20% og sætanýting var 76,2% samanborið við 81,3% á sama tíma í fyrra. Hlutfallslega aukið framboð á lengri leiðum félagsins, mælt í sætiskílómetrum (ASK), hefur þau áhrif að sætisnýtingarhlutfall lækkar. Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 25 þúsund í apríl og fækkar um 5% á milli ára. Framboð félagsins í apríl var dregið saman um 10% samanborið við apríl 2012. Sætanýting nam 69,3% og jókst um 3,3 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 7% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 5% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 16% miðað við apríl á síðasta ári. Herbergjanýting var 66,9% samanborið við 66,8% í apríl í fyrra. MILLILANDAFLUG APR 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 148.074 9% 506.373 15% Sætanýting 76,2% -5,1 %-stig 74,7% -2,4 %-stig Framboðnir sætiskm. (ASK'000) 564.004 20% 1.933.239 23% INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG APR 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 25.428 -5% 95.902 -9% Sætanýting 69,3% 3,3 %-stig 70,3% 2,4 %-stig Framboðnir sætiskm. ('000) 12.192 -10% 43.670 -12% LEIGUFLUG APR 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------------- Flugvélanýting 90,9% -0,8 %-stig 84,1% -4,1 %-stig Seldir blokktímar 2.384 -7% 9.609 -10% FRAKTFLUTNINGAR APR 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------------- Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 14.532 11% 54.052 9% Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.610 5% 30.119 2% HÓTEL APR 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------------- Framboðnar gistinætur 22.200 16% 88.800 21% Seldar gistinætur 14.848 16% 56.739 23% Herbergjanýting 66,9% 0,1 %-stig 63,9% 0,8 %-stig Nánari upplýsingar veita: Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010 |
|||
|