2017-02-20 10:00:00 CET

2017-02-20 10:00:00 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun



Í viku 7 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 3.000.000 eigin hluti að
kaupverði 53.450.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning      Tími  Keyptir hlutir  Viðskiptaverð (gengi)  Kaupverð (kr.)
---------------------------------------------------------------------------
---------------------------------------------------------------------------
 16.2.2017  12:29:52          16.806                  17,70         297.466
 16.2.2017  12:36:52         983.194                  17,70      17.402.534
---------------------------------------------------------------------------
 17.2.2017  09:59:11         167.000                  17,95       2.997.650
---------------------------------------------------------------------------
 17.2.2017  09:59:38          11.066                  17,95         198.635
---------------------------------------------------------------------------
 17.2.2017  09:59:43         821.934                  17,95      14.753.715
---------------------------------------------------------------------------
 17.2.2017  10:36:59       1.000.000                  17,80      17.800.000
---------------------------------------------------------------------------
Samtals                    3.000.000                             53.450.000
---------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016. 

Sjóvá átti 71.190.770 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum
74.190.770 eigin hluti eða sem nemur 4,75% af útgefnum hlutum í félaginu. 

Sjóvá hefur keypt samtals 48.892.365 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem
nemur 3,13% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra
725.500.204 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 130.945.271
hlutum eða sem nemur 8,38% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má
heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í
gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars
2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um
hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og
markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í
endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ 



Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000