2017-02-22 15:30:43 CET

2017-02-22 15:30:43 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska Enska
Orkuveita Reykjavíkur - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Skuldabréfaútboð OR 28. febrúar


Reykjavík, 2017-02-22 15:29 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Þriðjudaginn 28. febrúar
2017 verða boðin til sölu ný skuldabréf í þremur neðangreindum flokkum
Orkuveitu Reykjavíkur, sem allir hafa verið teknir til viðskipta hjá Nasdaq
Iceland. 

Flokkur OR090546: Verðtryggð jafngreiðslubréf til ríflega 29 ára. Áður útgefin
skuldabréf að nafnverði 5.461.724.833 kr. 

Flokkur OR090524: Verðtryggð jafngreiðslubréf til ríflega 7 ára. Áður útgefin
skuldabréf að nafnverði 1.088.000.000 kr. 

Flokkur OR011222: Vaxtagreiðslubréf til tæplega 6 ára. Áður útgefin skuldabréf
að nafnverði 500.000.000 kr. 

Fjárfestingarbankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu og kynnir það
fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður lokað og með hollenskri aðferð,
þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður í
hverjum flokki. OR áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta
eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega
eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð. 


         Nánari upplýsingar:
         Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion
banka, sími 444-7337, netfang verdbrefamidlun@arionbanki.is 
         Brynja Kolbrún Pétursdóttir forstöðumaður Fjárstýringar og greininga
OR, sími 516-6100, netfang brynja.kolbrun.petursdottir@or.is 
         Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími 516-6100,
netfang ingvar.stefansson@or.is