|
|||
2014-06-10 14:11:46 CEST 2014-06-10 14:12:46 CEST REGULATED INFORMATION Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.Í 23. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 512.500 eigin hluti fyrir 13,3 m.kr. eins og hér segir: Dagsetnin Tími Keyptir Viðskiptave Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir g hlutir rð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 2.6.2014 13:29 500.000 25,90 12.950.00 3.500.000 0 -------------------------------------------------------------------------------- 4.6.2014 12:58 12.500 26,00 325.000 3.512.500 -------------------------------------------------------------------------------- Samtals 512.500 13.275.00 0 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 30. apríl 2014. TM hefur nú keypt samtals 3.512.500 hluti í félaginu sem samsvarar 16,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 98,9 milljónum króna. TM á nú samtals 0,46% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viðarsson, forstjóri s: 515-2609 sigurdur@tm.is |
|||
|