|
|||
![]() |
|||
2016-03-02 19:42:43 CET 2016-03-02 19:42:43 CET REGLERAD INFORMATION Marel hf. - FyrirtækjafréttirHelstu niðurstöður Aðalfundar MarelAðalfundur Marel var haldinn í höfuðstöðvum félagsins í Garðabæ 2. mars 2016. Allar tillögur sem lágu fyrir fundinum voru samþykktar samhljóða. Ávarp stjórnarformanns Ásthildur Margrét Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel talaði um þá kraftmiklu hvata sem eru undirliggjandi í rekstrarumhverfi Marel í erindi sínu. Fólksfjölgun, þéttbýlisvæðing, sjálfbærni og breytt neyslumynstur eru meðal þeirra hvata sem munu í framtíðinni drífa áfram hagvöxt sem og þróun og framgang í þeim iðnaði sem Marel starfar í. Ásthildur tók einnig saman rekstrarniðurstöðu Marel og áfanga sem náðust á árinu 2015 þar með talið hversu vel áætlun um einfalda og skilvirkara Marel gekk og einnig þá stefnumarkandi ákvörðun að kaupa MPS Meat processing systems. Stjórnarformaðurinn talaði fyrir þeirri tillögu stjórnar að greiða arð fyrir árið 2015 sem nemur 20% af hagnaði ársins. “Stjórn Marel er ánægð með að leggja til heildararðgreiðslu til hluthafa sem nemur €11,3 milljónum. Þetta er til samræmis við arðgreiðslustefnu félagsins,“ sagði hún. Í erindi sínu talaði Ásthildur um þær áskoranir sem bíða Marel, neytenda og fyrirtækja almennt í framtíðinni. „Sú áskorun að mæta vaxandi neysluþörf á hagkvæman, skilvirkan og sjálfbæran hátt býr til ótal tækifæri fyrir Marel og viðskiptavini okkar. Okkar verkefni er að finna framúrstefnulegar leiðir til að draga úr sóun í framleiðsluferlinu og koma með nýja tækni sem mun auka framboð á gæðamatvælum sem framleidd eru með minni orku en áður. Árið 2015 settum við okkur skýra framtíðarsýn varðandi samfélagslega ábyrgð“, sagði Ásthildur. Ávarp forstjóra “2015 var frábært ár fyrir Marel. Tveggja ára áætlun okkar um einfaldara og skilvirkara Marel hefur nú runnið sitt skeið og skilað miklum árangri, sem m.a. má sjá í hagræðingu á vöruframboði og framleiðslu-einingum félagsins auk þess sem reksturinn hefur verið straumlínulagaður. Á sama tíma tókst okkur að þjónusta viðskiptavini enn betur sem skilaði 15% aukningu í tekjum og rekstrarhagnaði upp á 100 milljónir evra, samanborið við 49 milljónir evra árið 2014,” sagði Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel í erindi sínu á aðalfundi Marel. Árni talaði einnig um þann árangur sem hefur náðst í áætlun um einfaldara og skilvirkara Marel (e. simpler, smarter, faster) sem hefur nú verið lokið með góðum árangri. Hann talaði einnig um kaupin á MPS sem munu styrkja stöðu Marel sem alþjóðlegs leiðtoga í framleiðslu og þjónustu á kerfum til vinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. „Þetta er algjörlega í takt við okkar stefnu“, sagði Árni. Hann kynnti einnig þær breytingar sem kynntar voru á markaðssetningu Marel (e. corporate identity) í dag. Breytingarnar miða að því að einfalda og styrkja markaðssókn Marel og styðja við vöxt og velgengni félagsins til framtíðar. Allir 4.600 starfsmenn Marel eru nú sameinaðir undir vörumerki Marel, með eitt slagorð og endurskilgreinda framtíðarsýn og gildi. Að lokum talaði Árni um þær breytingar í skipulagi og framkvæmdastjórn félagsins sem tilkynntar voru fyrr í dag. „Marel hefur nú breytt skipulagi sínu og mun í framtíðinni birta rekstrarniðurstöður fyrir þrjá iðnaði í stað fjögurra áður. Héðan í frá munu viðskiptavinir Marel vinna með Marel Poultry, Marel Meat og Marel Fish og munu iðnaðarnir þrír bjóða heildarlausnir frá frumvinnslu til seinni stiga vinnslunnar og fullvinnslu. Fullvinnsla verður til áfram sem eining innan Marel sem mun vinna þvert á iðnaðina þrjá: kjúkling, kjöt og fisk. Ársreikningur samþykktur Fundurinn samþykkti samhljóða ársreikning og skýrslu stjórnar og forstjóra fyrir árið 2015. Allar tillögur sem lágu fyrir fundinum voru samþykktar samhljóða. Stjórn Marel endurkjörin Stjórn Marel var endurkjörin og hana skipa: Ástvaldur Jóhannsson, Ólafur Guðmundsson , Arnar Þór Másson, Ásthildur Margrét Otharsdottir, Ann Elizabeth Savage, Helgi Magnússon og Margrét Jónsdottir. Ný stjórn Marel hefur komið saman og skipt með sér verkum. Ásthildur Margrét Otharsdóttir verður áfram stjórnarformaður og Arnar Þór Másson er varaformaður stjórnarinnar Frekari upplýsingar Frekari upplýsingar um aðalfundinn og niðurstöður hans eru aðgengilegar á Marel.com og á upplýsingasíðu aðalfundar 2016 http://www.marel.com/agm. Myndbandsupptaka af fundinum verður aðgengileg fljótlega á upplýsingasíðu aðalfundar. |
|||
|