2016-03-03 15:22:49 CET

2016-03-03 15:22:49 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska Engelska
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Íbúðalánasjóður kaupir skuldabréf fyrir 13,5 milljarða og eykur jöfnuð á milli eigna og skuldabindinga sjóðsins


Íbúðalánasjóður hefur undirritað samning við dótturfélag Seðlabankans, ESÍ
ehf., um kaup á skuldabréfum fyrir 13,5 milljarða króna. Um er að ræða
eignavarin skuldabréf með veði í húsnæðislánum útgefin af Arion banka hf.
Samningurinn er gerður með fyrirvara um endanlegt samþykki stjórnar. Um er að
ræða bréf úr sama flokki og Íbúðalánasjóður keypti af sama aðila í október
2015.