2016-03-03 16:58:36 CET

2016-03-03 16:58:36 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn hf. lýkur víxlaútboði


Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á tveimur víxlaflokkum, þegar
útgefnum flokki, LBANK 160810 og nýjum flokki, LBANK 160912. 

Heildartilboð í útboðinu námu 3.960 m. kr. og var tilboðum tekið í flokki LBANK
160810 að fjárhæð 540 m. kr. á 6,50% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu
97,3118 og í flokki LBANK 160912 að fjárhæð 2.680 m. kr. á 6,58% flötum vöxtum
sem jafngildir verðinu 96,7121. 

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. mars 2016.

Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans,
www.landsbankinn.is/vixlar.