2013-10-22 10:31:46 CEST

2013-10-22 10:32:23 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : MP banki annast viðskiptavakt með sértryggt skuldabréf ISLA CB 16


Íslandsbanki hf. hefur samið við MP banka um að hinn síðarnefndi annist

viðskiptavakt með ISLA CB 16, útgefnum sértryggðum skuldabréfum (e. Covered

Bonds) Íslandsbanka. Í því felst að setja fram daglega kaup- og sölutilboð í

bréfin, áður en markaður er opnaður, að lágmarki 20 m.kr. að

nafnverði.



MP banki mun endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að tilboði hefur

verið tekið. Tilboðin gilda aðeins innan dags og hámarksmunur kaup- og

sölutilboða ákvarðast af verði gildra tilboða og má vera 0,8%.



Eigi viðskiptavakt MP banka viðskipti á einum degi fyrir 60 m.kr. að

nafnvirði er honum heimilt að hætta framsetningu tilboða fram á næsta

viðskiptadag.



Viðskiptavaktin gildir frá og með þriðjudeginum 22. október 2013.



Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
440 3187 / 844 3187.

Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma
440 3925. 

[HUG#1737236]