|
|||
2008-05-20 18:53:34 CEST 2008-05-20 18:53:38 CEST REGULATED INFORMATION Icebank - ÁrsreikningurCORRECTION: Afkoma Icebank hf. á fyrsta ársfjórðungi ársins 2008Fréttatilkynning Reykjavík, 20. maí 2008 Afkoma Icebank hf. á fyrsta ársfjórðungi ársins 2008 Hreinar vaxtatekjur aukast en afkoman neikvæð um 3,4 ma.kr. Hreinar vaxtatekjur Icebank hf. námu 809 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi ársins 2008 samanborið við 507 m.kr. eftir fyrsta ársfjórðung fyrra árs. Aukningin er um 60% og eru vaxtatekjur nú 59% hærri en allur rekstrarkostnaður bankans. Afkoma bankans eftir skatta er hinsvegar neikvæð á ársfjórðungnum um 3.360 m.kr. en var neikvæð um 2.747 m.kr. á síðasta ársfjórðungi 2007. Þessi niðurstaða skýrist aðallega af tvennu: a)Gengistapi af markaðsbréfum, sem nemur 3.532 m.kr., einkum af eignarhlut bankans í Exista sem lækkaði um 44% á ársfjórðungnum en bankinn átti 281 milljón hluti í ársbyrjun. b)Varúðarniðurfærslu krafna að fjárhæð 2.278 m.kr. Eigið fé bankans lækkar þannig milli ársfjórðunga, úr tæpum 13.361 m.kr. í 10.309 m.kr. Eiginfjárhlutfallið á CAD grunni var samkvæmt því 9,1% en er 10,1% þegar tekið er tillit til áhrifa sem breytingar á lögum um tekjuskatt leiða af sér. Heildareignir bankans lækkuðu á ársfjórðungnum, einkum vegna aukins aðhalds í útlánum í kjölfar óstöðugleika á fjármálamörkuðum. Eignir bankans námu 240 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en voru 253 ma.kr.í árslok 2007. Rekstrarkostnaður bankans nam 508 m.kr. á ársfjórðungnum en var 647 m.kr. á síðasta ársfjórðungi 2007. Agnar Hansson bankastjóri: „Það var á brattann að sækja á fyrsta ársfjórðungi líkt og á síðasta ársfjórðungi 2007 og ljóst að afkoman er ekki góð. Þó er ánægjulegt hversu mikið hreinar vaxtatekjur jukust en það sýnir betur en margt annað að grunnrekstur bankans stendur styrkum fótum. Vaxtatekjurnar einar og sér standa undir öllum rekstrarkostnaði og gott betur. Icebank hefur ávallt lagt áherslu á hagkvæmni og skilvirkni í rekstri og við erum því vel í stakk búin til að takast á við krefjandi markaðsaðstæður. Icebank hefur áfram minnkað stöðu sína í Exista og nemur eign bankans í félaginu nú 111 milljónum hluta. Þessi breyting hefur áhrif til hækkunar á CAD eiginfjárgrunni bankans. Gaumgæfileg skoðun hefur farið fram á eignum bankans. Í kjölfarið var gerð sú varúðarráðstöfun að færa niður kröfur að fjárhæð 2.278 m.kr. Þetta er einkum gert vegna verðrýrnunar trygginga í formi hlutabréfa. Það er trú mín að með þessari aðgerð mæti bankinn vel þeim lækkunum sem hafa orðið á mörkuðum. Icebank hefur nýlokið endurfjármögnun erlendra langtímalána ársins 2008 á góðum kjörum. Lausafjárstaða bankans er góð og hefur bankinn nægt laust fé til næstu 12 mánaða. Ég tel að Icebank sé kominn yfir erfiðasta hjallann og við horfum björtum augum til framtíðar. Annar ársfjórðungur hefur farið vel af stað og framtíðarafkomuhorfur eru góðar.“ Nánari upplýsingar veitir: Agnar Hansson, bankastjóri Icebank, í síma 540 4000 |
|||
|