|
|||
2024-05-13 18:13:30 CEST 2024-05-13 18:13:30 CEST Íslandshótel hf. - Lýsing/tilkynning um birtingu lýsingarÍslandshótel hf. - Útboðslýsing birt og hlutafjárúboð hefst á morgunStjórn Íslandshótela hf. hefur óskað eftir töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og staðfest áform sín um að hefja almennt hlutafjárútboð á hlutum í Íslandshótelum hf. þann 14. maí 2024 kl. 10.00 Nánari upplýsingar um útboðið má finna á vefsíðu félagsins https://www.islandshotel.is/hlutafjarutbod-2024/ Íslandshótel er stærsta hótelkeðja landsins og eru hótelin rekin undir tveimur vörumerkjum, Hótel Reykjavík og Fosshótel. Félagið rekur 18 hótel með 1.966 herbergjum hringinn í kringum Ísland og eru 16 af hótelfasteignunum í eigu félagsins. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka og fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka eru umsjónaraðilar útboðsins. |
|||
|