2016-08-24 16:16:43 CEST

2016-08-24 16:16:43 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska Enska
Landsvirkjun - Ársreikningur

Sex mánaða uppgjör Landsvirkjunar 2016


Nettó skuldir halda áfram að lækka

Helstu atriði árshlutareiknings

  -- Rekstrartekjur námu 206,9 milljónum USD (25,2 ma.kr.) og lækka um 8,8
     milljónir USD (4,1%) frá sama tímabili árið áður .1



  -- EBITDA nam 155,2 milljónum USD (18,9 ma.kr.). EBITDA hlutfall er 75,0% af
     tekjum, en var 78,5% á sama tímabili í fyrra.



  -- Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 64,5 milljónum USD (7,9
     ma.kr.), en var 80,0 milljónir USD á sama tímabili árið áður og lækkar því
     um 19,4% milli tímabila. Lækkun álverðs og gengisáhrif skýra lækkun milli
     tímabila.



  -- Hagnaður tímabilsins var 34,8 milljónir USD (4,2 ma.kr.) en var 63,9
     milljónir USD á sama tímabili árið áður. Tekjulækkun skýrir hér hluta
     lækkunar milli tímabila en stærstan þátt á breyting á óinnleystum
     fjármagnsliðum.



  -- Nettó skuldir lækkuðu um 39,4 milljónir USD (4,8 ma.kr.) frá áramótum og
     voru í lok júní 1.946,0 milljónir USD (237,4 ma.kr.).



  -- Handbært fé frá rekstri nam 123,8 milljónum USD (15,1 ma.kr.) sem er 15,4%
     lækkun frá sama tímabili árið áður.



Hörður Arnarson, forstjóri:

„Afkoma fyrirtækisins á fyrri hluta ársins var góð, ekki síst miðað við
krefjandi ytra umhverfi. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 7,9
milljörðum króna, en árshlutinn var sá fjórði besti frá upphafi. Hreinar
skuldir halda áfram að lækka, á sama tíma og bygging nýrra virkjana stendur
yfir, sem er til vitnis um traustan grunnrekstur og sjóðsmyndun. 

Tekjur lækkuðu í samanburði við sama tímabil árið áður, aðallega vegna lækkandi
álverðs. Verð á álmörkuðum mun áfram hafa áhrif á afkomu Landsvirkjunar, en við
endursamninga og gerð nýrra samninga höfum við lagt áherslu á að draga úr vægi
þeirrar tengingar. Landsvirkjun komst í fjárfestingaflokk hjá
lánshæfismatsfyrirtækinu Standard and Poor‘s í byrjun árs. Það stuðlar að
áframhaldandi lágum vaxtakostnaði, sem er mikilvægur þáttur í rekstri
fyrirtækisins til framtíðar og gefur fyrirtækinu aukna möguleika á fjármögnun 
án ríkisábyrgðar. 

Við verðum áfram vör við sterka eftirspurn eftir íslenskri endurnýjanlegri orku
frá fjölbreyttum iðnaði. Til að auka orkuvinnslu standa nú yfir framkvæmdir við
byggingu jarðvarmavirkjunar á Þeistareykjum og stækkun vatnsaflsvirkjunar við
Búrfell.“ 

[1] Til viðmiðunar eru sýndar íslenskar krónur, notast var við gengi USD/ISK 122