2016-08-24 17:34:18 CEST

2016-08-24 17:34:18 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Sláturfélag Suðurlands svf. - Interim information (is)

Árshlutareikningur Sláturfélags Suðurlands jan - júní 2016


Afkoma á fyrri árshelmingi 2016



  -- Tekjur á fyrri árshelmingi 6.235 m.kr. og aukast um 9% milli ára.
  -- 305 m.kr. hagnaður á fyrri árshelmingi ársins en 245 m.kr. hagnaður árið
     áður.
  -- EBITDA afkoma var 632 m.kr. en 527 m.kr. árið áður.
  -- Eigið fé 4.468 m.kr. í lok júní og eiginfjárhlutfall 55%.





Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands
svf. og dótturfélögum þess, Reykjagarði hf. og Hollt og gott ehf.  Sláturfélag
Suðurlands keypti 50% eignarhlut í félaginu Hollt og gott ehf. þann 31. ágúst
2015 og er hluti af samstæðunni frá þeim tíma. Hafa þarf það í huga við
samanburð rekstrarliða milli ára. 



Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til júní 2016 var
305 m.kr.  Á sama tímabili árið áður var 245 m.kr. hagnaður.  Eigið fé
Sláturfélagsins er 4.468 m.kr. í lok júní. 



Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 6.235 m.kr. á fyrri
árshelmingi ársins 2016, en 5.712 m.kr. á sama tíma árið áður og aukast því um
9%.  Aðrar tekjur voru 6 m.kr. en 2 m.kr. árið áður. 



Vöru- og umbúðanotkun var 3.423 m.kr. en 3.307 m.kr. árið áður. Launakostnaður
hækkaði um 22%, annar rekstrarkostnaður hækkaði um 8% og afskriftir um tæp 18%.
Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 447 m.kr., en 370
m.kr. árið áður.  Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 632
m.kr.  en var 527 m.kr. á sama tíma í fyrra. 



Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var engin en árið áður neikvæð um 4 m.kr. 
Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 70 m.kr., en voru 63 m.kr., á sama
tímabili í fyrra.  Reiknaður tekjuskattur nam 72 m.kr., en 58 m.kr. árið áður. 
Hagnaður af rekstri tímabilsins var 305 m.kr. en 245 m.kr. á sama tímabili árið
áður. 



Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 627 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins
2016, samanborið við 525 m.kr. fyrir sama tímabil árið 2015. Heildareignir
Sláturfélagsins 30. júní  voru 8.064 m.kr. og eiginfjárhlutfall 55%. 
Veltufjárhlutfall var 2,4 á fyrri hluta ársins 2016, en 2,6 árið áður. 



Fjárfest var í varanlegum rekstarfjármunum á fyrri árshelmingi 2016 fyrir 253
m.kr. en 288 m.kr. á sama tímabili árið áður. Seldar voru eignir fyrir 6 m.kr.
Á fyrri árshelmingi var m.a. fjárfest í fasteignum en byggt var nýtt 1500
fermetra vöruhús í Þorlákshöfn og í nýjum vélbúnaði fyrir kjötvinnslu. 



Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2016 var í aprílmánuði greiddur
12,0% arður af B-deild stofnsjóðs alls 22 m.kr. og reiknaðir 5% vextir á
A-deild stofnsjóðs alls 16 m.kr. 



Stjórn og forstjóri staðfestu árshlutareikning samstæðu Sláturfélagsins fyrir
tímabilið 1. janúar – 30. júní 2016 

með undirritun á stjórnarfundi í dag. Árshlutareikningur samstæðunnar er með
könnunaráritun endurskoðenda. 



Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX.  Viðurkenndir
ráðgjafar félagsins (e. Certified Advisors) eru Ágúst H. Ólafsson og Árni Jón
Árnason hjá Deloitte – first-north@deloitte.is.  Sláturfélagið birtir
upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti.  Ráðgert er að birta afkomu ársins
2016 þann 16. febrúar 2017. 





Staða og horfur

Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 55% eiginfjárhlutfall og
veltufjárhlutfall 2,4. Langtímatímaskuldir í lok júní 2016 voru 1.815 m.kr.
Næsta árs afborganir eru um 86 m.kr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma sem
tryggir lága árlega greiðslubyrði. 



Gert er ráð fyrir áframhaldandi neikvæðum áhrifum af innflutningi á kjöti á
rekstur afurðahluta félagsins. Einnig ríkir óvissa með afsetningu á hluta
kindakjötsafurða sem falla til í haust og verðþróun á erlendum mörkuðum auk
neikvæðra áhrifa vegna gengisstyrkingar krónu á útflutningstekjur. 

Staða lykilvörumerkja félagsins í kjötiðnaði er sterk og ímynd félagsins góð á
markaði sem rennir stoðum undir frekari uppbyggingu á markaðsstöðu á komandi
árum.  Samt sem áður er reiknað með að erfiðar markaðsaðstæður á kjötmarkaði
hafi áfram neikvæð áhrif  á afkomu kjötiðnaðar á árinu. 

Matvöruhluti innflutningsdeildar stendur vel. Með nýjum viðskiptasamböndum
hefur vöruúrval verið aukið til áframhaldandi vaxtar. Búvöruhluti
innflutningsdeildar hefur styrkt stöðu sína á markaði fyrir helstu
rekstrarvörur bænda. Sala á Yara áburði til bænda gekk vel á fyrri hluta ársins
og sala á fóðurbætiefnum og öðrum rekstrarvörum eykst stöðugt. 





Fjárhagsdagatal

Júlí – desember 2016 uppgjör                16. febrúar 2017

Aðalfundur 2017                                   17. mars 2017









Frekari upplýsingar veita:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 – hjalti@ss.is