2014-06-27 19:17:03 CEST

2014-06-27 19:18:04 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Eikar fasteignafélags hf. á Landfestum ehf.


Kaupsamningur milli Eikar fasteignafélags hf. og Arion banka hf. um kaup Eikar
á öllu hlutafé í fasteignafélaginu Landfestum ehf. var undirritaður þann 20.
desember 2013. Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir við kaupsamninginn
sem var undirritaður m.a. með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. 

Allir fyrirvarar ofangreinds kaupsamnings eru nú uppfylltir. Uppgjör og
afhending í tengslum við viðskiptin mun eiga sér stað á næstu dögum. 

Eftir kaupin verður Eik fasteignafélag hf. annað stærsta fasteignafélag
landsins með um eitt hundrað eignir sem telja um 272 þúsund fermetra.
Heildarfjöldi leigutaka verða yfir fjögur hundruð og efnahagur félagsins yfir
60 milljarðar króna. 



Frekari upplýsingar veitir

Garðar Hannes Friðjónsson,

forstjóri Eikar fasteignafélags hf.

Sími: 861-3027

Netfang: gardar@eik.is