|
|||
2014-06-29 13:12:38 CEST 2014-06-29 13:13:38 CEST REGULATED INFORMATION Eimskipafélag Íslands hf. - FyrirtækjafréttirEimskip í samstarf við hafnaryfirvöld í Qingdao í KínaNýtt sameiginlegt félag stofnað um rekstur frystigeymslu Eimskip hefur undirritað samning við hafnaryfirvöld í kínversku hafnarborginni Qingdao um rekstur 55 þúsund tonna frystigeymslu. Umrædd geymsla hefur hefur verið starfrækt frá árinu 2007 af A1988 hf., áður HF. Eimskipafélag Íslands. Samkvæmt samkomulagi við hafnaryfirvöld í Qingdao mun Eimskip koma að rekstrinum og verða 30% eigandi að nýju rekstrarfélagi á móti 70% eignarhlut hafnaryfirvalda. Aðkoma hafnaryfirvalda er mikilvægur þáttur í að styrkja rekstur frystigeymslunnar, en ýmsar breytingar eru fyrirhugaðar í umhverfi hafnarinnar sem koma munu rekstrinum til góða í náinni framtíð. Hafnaryfirvöld hafa valið Eimskip sem samstarfsaðila varðandi uppbyggingu á flutningatengdri þjónustu við inn- og útflytjendur á kæli- og frystivöru þar sem Eimskip hefur sérhæft sig á því sviði. Sameiginlegt rekstrarfélag mun leigja geymsluna af hafnaryfirvöldum í Qingdao. James Liu, forstöðumaður Eimskips í Kína, mun stýra rekstri geymslunnar samhliða starfsemi Eimskips í Kína. Fjárfesting Eimskips vegna þessa verkefnis er 700 þúsund evrur sem lagt er fram sem hlutafé í hinu nýja rekstrarfélagi. Frystigeymslan í Qingdao liggur við gámahöfn borgarinnar sem veltir um 15,5 miljónum gámaeininga á ári og er sjöunda stærsta gámahöfn í heimi. Um 80 starfsmenn munu starfa í hinu nýja rekstrarfélagi og er árleg velta i upphafi áætluð um 4,5 milljónir evra. Eimskip rekur fjórar starfstöðvar í Kína, í Qingdao, Dalian, Xiamen og Shenzen, og starfa hjá félaginu þar í landi um 140 starfsmenn. Höfuðstöðvar starfseminnar eru í Qingdao, en á því svæði fer fram mikil vinnsla sjávarafurða ásamt umfangsmiklum útflutningi á ávöxtum og grænmeti og innflutningi á kjöti. Í nóvember á þessu ári mun Eimskip fagna 10 ára starfsafmæli sínu í Asíu, í kringum sjávarútvegssýninguna í Qingdao, en félagið opnaði sína fyrstu starfsstöð í Kína árið 2004. Samhliða þessu munu Eimskip og hafnaryfirvöld í Qingdao vinna að stefnumörkun um samstarf félaganna og frekari uppbyggingu á frystiflutningsmiðlun í Qingdao. Eimskip flytur í gegnum sína frystiflutningsmiðlun yfir 40 þúsund gámaeiningar til og frá Kína árlega. Sú starfsemi hefur vaxið hratt undanfarin ár og hefur mesti vöxturinn verið í viðskiptum innan Asíu. Samtarf Eimskips við hafnaryfirvöld í Qingdao er þýðingarmikið skref í frekari uppbyggingu á frystiflutningsmiðlun félagsins í Asíu. Þann 1. júlí 2014, daginn sem fríverslunarsamningur Íslands og Kína tekur gildi, mun nýtt gámaskip Eimskips, Lagarfoss, leggjast að bryggju við hlið frystigeymslunnar í Qingdao og flytja þaðan til Íslands nýja frystigáma og kínverskar vörusendingar sem falla undir tollafríðindi nýja samningsins. Gylfi Sigfússon, forstjóri „Það er mjög ánægjulegt að ná þessu samkomulagi við hafnaryfirvöld í Qingdao um rekstur frystigeymslunnar að loknu löngu ferli og er það mikil viðurkenning fyrir uppbyggingu Eimskips í Asíu. Með samkomulaginu er rennt styrkari stoðum undir starfsemi frystigeymslunnar, sem og undir aðra starfsemi Eimskips í Kína og Asíu. Breytingar á rekstrarumhverfi geymslunnar hafa einnig breyst til hins betra á undanförnum misserum, meðal annars vegna geymslu á öðrum afurðum en fiski, s.s kjöti, ávöxtum og grænmeti. Starfsemin fellur vel að stefnu Eimskips um frekari eflingu á frystiflutningsmiðlun félagsins, en höfnin í Qingdao er sjöunda stærsta gámahöfn í heimi. Í Qingdao búa um 8,7 milljónir manna og er borgin ein og sér stór markaður fyrir Eimskip.“ Um Eimskip Eimskip rekur 51 starfsstöð í 19 löndum og er með 16 skip í rekstri. Félagið hefur á að skipa um 1.400 starfsmönnum, þar af um 800 á Íslandi. Um helmingur tekna félagsins kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun. |
|||
|