2011-05-20 13:46:15 CEST

2011-05-20 13:47:15 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824 og RIKS 21 0414


Útboð á óverðtryggðum og verðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKB 12 0824 og RIKS
21 0414 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig
háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta
ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 


Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 12 0824:
Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.523 m.kr. að nafnverði. 7
tilboðum var tekið fyrir 2.623 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,35 (3,12%
ávöxtunarkröfu). 

RIKS 21 0414:
Alls bárust 24 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.525 m.kr. að nafnverði. 18
tilboðum var tekið fyrir 4.575 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 107,90 (2,87%
ávöxtunarkröfu). 



Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 24.
maí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 25. maí 2011.