2014-08-28 15:00:01 CEST

2014-08-28 15:00:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Ársreikningur

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar – júní 2014


Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar til
júní 2014 var staðfestur í borgarráði í dag, fimmtudaginn 28. ágúst. 

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um
3.723 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 2.203 mkr.
Rekstrarniðurstaðan er því 1.520 mkr betri en gert var ráð fyrir.  Helstu
ástæður má rekja annars vegar til tekjufærslu matsbreytinga fjárfestingaeigna
hjá Félagsbústöðum og hins vegar til áhrifa fjármagnsgjalda hjá Orkuveitu
Reykjavíkur. Þar vegur þyngst gengismunur og verðmæti innbyggðra afleiða. 
Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 6.667 mkr sem er 591 mkr
lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. 

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok
júní samtals 479.873 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 285.000 mkr
og eigið fé nam 194.874 mkr en þar af nam hlutdeild meðeigenda 10.170 mkr. 

Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 2.353 mkr en áætlun gerði ráð fyrir
að hún yrði neikvæð um 1.711 mkr á tímabilinu og er niðurstaðan því lakari en
gert var ráð fyrir, sem nemur 642 mkr.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði
var neikvæð um 1.973 mkr en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um
1.496 mkr eða 477 mkr lakari en áætlun gerði ráð fyrir.   Lakari
rekstrarniðurstaða skýrist meðal annars af minni tekjum af sölu byggingaréttar
en áætlun gerði ráð fyrir og auknum kostnaði við vetrarþjónustu. 

Fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er mikill hvort sem litið er til
eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla. 



Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst
starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að
ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. Til B-hluta
teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu
borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með
þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf.,
Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita
Reykjavíkur, Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins
bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf. 



Breytt uppgjör Orkuveitu Reykjavíkur. Þann 1. Janúar 2014 kom til framkvæmda
það ákvæði raforkulaga sem gerir fyrirtækjum á þeim markaði  skylt að skilja á
milli sérleyfis- og samkeppnishluta starfseminnar. Um áramótin tók Orka
náttúrunnar ohf., dótturfélag sem er alfarið í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, til
starfa á samkeppnismarkaði raforku en félagið var stofnað til að uppfylla þetta
lagaákvæði. Veituþjónustan verður áfram rekin undir merkjum Orkuveitu
Reykjavíkur, bæði þau lögbundnu skylduverkefni sveitarfélaga sem vatns- og
fráveita eru og sérleyfisþjónusta rafmagns- og hitaveitu. Í móðurfélagi
breyttrar samstæðu, Orkuveitu Reykjavíkur, verður sameignleg stoðþjónusta við
dótturfélög s.s. fjármál, gæða, umhverfis- og öryggismál auk sameiginlegs
þjónustusviðs. 





Nánari upplýsingar veitir

Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar sími 693-9321