|
|||
2010-07-13 13:46:22 CEST 2010-07-13 13:47:19 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 10 1115Útboð á ríkisvíxlum í flokki RIKV 10 1115 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 10 1115: Alls bárust 43 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 23.905 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 22.075 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,16 (flatir vextir 5,49%). |
|||
|