|
|||
2013-12-12 17:27:40 CET 2013-12-12 17:28:40 CET REGULATED INFORMATION Hagar hf. - FyrirtækjafréttirNiðurstaða Hæstaréttar í máli Haga hf. gegn Arion banka hf.Í mars 2012 tók stjórn Haga hf. ákvörðun um að höfða dómsmál á hendur Arion banka hf. til að fá skorið úr um stöðu sína vegna endurútreiknings á gengistryggðum lánum félagsins hjá bankanum, sem greidd voru upp í október 2009. Hagar höfðu áður fengið greiddar 515 milljónir króna vegna endurútreiknings bankans en niðurstaða lögfræðiálits gaf til kynna að Hagar ættu enn frekari kröfu á hendur bankanum. Þann 28. maí sl. birti Héraðsdómur niðurstöðu sína í málinu þar sem Arion banki var sýknaður af kröfu Haga. Hagar áfrýjuðu dómnum til Hæstaréttar. Í dag birtist niðurstaða Hæstaréttar þar sem úrskurður Héraðsdóms var staðfestur og Arion banki því sýknaður af kröfu Haga. Niðurstaða dómsins hefur engin fjárhagsleg áhrif á rekstur Haga. Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri Haga hf., í síma 530-5500. |
|||
|