2014-06-02 17:07:07 CEST

2014-06-02 17:08:08 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Hluthafafundir

Hagar hf. - Framboð til stjórnar á aðalfundi 5. júní 2014


Hér að neðan má sjá þá sem gefa kost á sér til stjórnar í Högum hf. sem fram
fer á aðalfundi félagsins fimmtudaginn 5. júní 2014. Fundurinn fer fram á
Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík og hefst hann kl.
09:00. 

Stjórnarmenn:

  1. Erna Gísladóttir, kt. 050568-2969
  2. Kristín Friðgeirsdóttir, kt. 090871-5369
  3. Salvör Nordal, kt. 211162-5119
  4. Sigurður Arnar Sigurðsson, kt. 090164-2529
  5. Stefán Árni Auðólfsson, kt. 210772-4729

Samkvæmt samþykktum Haga hf. eiga fimm sæti í stjórn félagsins og er því
sjálfkjörið. Önnur framboð hafa ekki borist en framboðsfrestur er nú útrunninn. 



Erna Gísladóttir

Erna var fyrst kjörin í stjórn Haga hf. þann 1. mars 2010. Hún er menntuð MBA
frá IESE Barcelona og B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands. Erna er forstjóri
og eigandi BL ehf. og er ræðismaður Suður Kóreu á Íslandi. Erna var forstjóri
Bifreiða & landbúnaðarvéla hf. 2003-2008 og einn af eigendum þess félags, en
hún var framkvæmdastjóri hjá B&L 1991-2003. Erna situr í stjórnum eftirtalinna
félaga: EGG ehf., EGG fasteignir ehf., Eldhúsvörur ehf., Hregg ehf., BL ehf.,
BLIH eignarhaldsfélag hf., SF 1 slhf., SF1GP ehf. og Sjóvá-Almennar tryggingar
hf. Erna á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hún er fjárhagslega tengd
Sjóvá-Almennum tryggingum hf. sem eiga 6.888.889 hluti í Högum hf. 



Kristín Friðgeirsdóttir

Kristín var fyrst kjörin í stjórn Haga hf. þann 11. maí 2011. Hún er menntuð
Ph.D. í rekstrarverkfræði frá Stanford University, M.Sc. í rekstrarverkfræði
frá Stanford University og B.Sc. í véla- og iðnaðarverk-fræði frá Háskóla
Íslands. Kristín er dósent í stjórnunar- og rekstrarfræðum við London Business
School og stundar ráðgjöf, rannsóknir og kennslu á sviði ákvarðanatöku,
áhættustýringar, verðlagningar og tekjustýringar. Hún hefur starfað sem
ráðgjafi hjá McKinsey, Intel, AMD, Yahoo og öðrum internet- og
fjármálafyrirtækjum. Kristín situr í stjórn Háskólans í Reykjavík,
Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og Distica hf. Kristín á engin hlutabréf í Högum
hf. beint. Hún er fjárhagslega tengd Tryggingamiðstöðinni hf. sem á 14.057.558
hluti í Högum hf. 



Salvör Nordal

Salvör er menntuð Ph.D. í heimspeki frá Háskólanum í Calgary, M.Phil í Social
Justice frá Háskólanum í Stirling og B.A. í heimspeki frá Háskóla Íslands.
Salvör er forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands og hefur sinnt því
starfi frá árinu 2001. Salvör hefur starfað sem háskólakennari frá árinu 1998,
var í starfshópi um siðfræði og starfshætti í tengslum við Rannsóknarnefnd
Alþingis um fall bankanna, formaður Stjórnlagaráðs 2011, framkvæmdastjóri
Íslenska dansflokksins 1989-1994 og framkvæmdastjóri Listahátíðar 1986. Auk
þess hefur Salvör setið í Fjölmiðlanefnd frá árinu 2011 og sinnt margs konar
fjölmiðla- og trúnaðarstörfum.  Salvör situr í stjórn sjóðs Samtaka fjárfesta,
almennra hlutabréfa- og sparifjáreigenda fyrir hönd samtakanna. Hvorki Salvör
né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. 



Sigurður Arnar Sigurðsson

Sigurður Arnar er menntaður Cand. Oecon frá Háskóla Íslands. Sigurður Arnar er
forstjóri eigin fyrirtækis sem sinnir ráðgjafa- og fjárfestingastarfsemi.
Sigurður Arnar var áður forstjóri Húsamiðjunnar 2010-2013, forstjóri Kaupáss
2004-2006, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Byko 2000-2004 og framkvæmdastjóri
Elko 1997-2000. Á árunum 1993-1996 var Sigurður Arnar eigandi og
framkvæmdastjóri fyrirtækis í matvælaiðnaði og 1990-1993 starfaði hann við
endurskoðun hjá Arthur Andersen og KPMG ehf. Sigurður Arnar situr í stjórnum
Cibus ehf., Framsýnar ehf. og Metex ehf. Hvorki Sigurður Arnar né aðilar honum
fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. 



Stefán Árni Auðólfsson

Stefán Árni var fyrst kjörinn í stjórn Haga hf. þann 7. júní 2013. Hann er
menntaður lögfræðingur (Cand. jur) frá Háskóla Íslands og er með
framhaldsmenntun frá Háskólanum í Kent í Bretlandi. Stefán Árni er með réttindi
sem héraðsdómslögmaður og próf í verðbréfaviðskiptum. Stefán Árni starfar sem
lögmaður hjá Lögmönnum Bárugötu slf. Stefán Árni hefur áður sinnt störfum hjá
Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins 2005-2011, á Nefndasviði Alþingis 2003-2005
og hjá Fortis lögmannsstofu 1999-2005. Stefán Árni situr í stjórnum
eftirtalinna félaga: Rekstrarfélag Eikar ehf., Eik fasteignafélag hf., EF1 hf.,
Hváll ehf., Skeifan 8 ehf., Ingólfsstræti 1a ehf., Suðurlandsbraut 20 ehf.,
Klapparstígur 27 ehf., Skjárinn ehf., Skipti hf. og Egla hf. Hvorki Stefán Árni
né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf.