2014-03-31 10:32:48 CEST

2014-03-31 10:33:49 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Fréttaflutningur um bókunarstöðu


Fréttaflutningur um laka bókunarstöðu á sumum flugleiðum Icelandair ehf. hefur
skapað umræðu um að rekstur Icelandair Group hf. sé verri en reiknað var með í
áætlunum. Það er rangt, enda hefur ekkert komið fram í nefndum fréttum sem ekki
hefur komið fram í tilkynningum frá Icelandair Group til kauphallar. Í
tilkynningu sem fylgdi ársuppgjöri Icelandair Group hinn 6. febrúar
síðastliðinn kom fram að bókanir fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins færu hægar af
stað en ráðgert var. Þegar á heildina er litið standa þessar áætlanir
óhaggaðar, þótt sumir þættir geti verið ívið betri en reiknað var með og aðrir
þættir ívið lakari. Afkomuspáin hefur því ekki breyst. Eins og fram kom í
tilkynningu Icelandair Group til kauphallar dags. 6. febrúar er bókunarstaða
fyrir háannatíma ársins og seinni hluta ársins sterkari en upphaflegar áætlanir
gerðu ráð fyrir. 



Frekari upplýsingar:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
bubbi@icelandairgroup.is
896 1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
bogi@icelandairgroup.is
665 8801