|
|||
2013-12-12 16:58:21 CET 2013-12-12 16:59:22 CET REGULATED INFORMATION FÍ Fasteignafélag slhf. - FyrirtækjafréttirFÍ fasteignafélag undirritar kaupsamning um kaup á fasteignum við BernhöftstorfunaFÍ fasteignafélag slhf kt. 571212-0210 hefur undirritað kaupsamning um kaup á fasteignum við Bernhöftstorfuna í Reykjavík. Stjórn FÍ fasteignafélags slhf kt. 571212-0210 hefur samþykkt kaup á fasteignum við Bernhöftstorfuna í Reykjavík. Um er að ræða fasteignirnar Lækjargötu 3, Amtmannsstíg 1, og Bankastræti 2. Seljandi er Minjavernd hf. 700485-0139. Kaupsamningur hefur verið undirritaður. Með kaupum á fasteignunum þá nánast tvöfaldast leigutekjur og EBITA félagsins á ársgrundvelli. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri FÍ, Örn V. Kjartansson s. 8259000, orn@fifasteignir.is |
|||
|