2014-02-10 18:00:00 CET

2014-02-10 18:00:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Orkuveita Reykjavíkur selur eignarhlut í HS Veitum


Orkuveita Reykjavíkur, ásamt Reykjanesbæ, Grindavíkurbæ, Sandgerðisbæ,
Sveitarfélaginu Garði og Sveitarfélaginu Vogum, hefur undirritað samning um
sölu á samtals 34,38% hlutafjár í HS Veitum hf. Kaupandi er Ursus I slhf. og
nemur kaupverð 3.140 milljónum króna. Samningurinn er gerður með fyrirvara um
samþykki Samkeppniseftirlitsins. 

Allur hluti Orkuveitu Reykjavíkur, eða 16,58% í félaginu er seldur og nemur
söluandvirðið rúmum 1.514 milljónum króna. 

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka annaðist opið söluferli á eignarhlutnum í HS
Veitum og hafði milligöngu um viðskiptin. 

Samningsaðilar munu ekki tjá sig frekar um viðskiptin meðan að þau eru til
umfjöllunar hjá Samkeppniseftirlitinu.