2009-08-31 11:16:16 CEST

2009-08-31 11:17:16 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
KB ABS 10 - Ársreikningur

- 6 mánaða uppgjör 2009


Afkoma fagfjárfestasjóðsins KB ABS 10 á tímabilinu 1. janúar-30. júní 2009

Framsetning ársreiknings fagfjárfestasjóðsins KB ABS 10 er í samræmi við reglur
um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af
Fjármálaeftirlitinu. 

•  Enginn hagnaður varð af rekstri sjóðsins á tímabilinu samkvæmt
   rekstrarreikningi, en KB ABS 10 er útgefandi skuldabréfa sem tekin hafa verið
   til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland hf. 

•  Eigið fé sjóðsins 30. júní 2009 nam 1 m.kr. skv. efnahagsreikningi.

•  Árshlutareikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun sína
   hafi ekkert komið fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi
   glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu hans 30. júní 2009
   og breytingu á hreinni eign á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga.
   Í könnunaráritun óháðs endurskoðanda er ábending, þar sem vakin er athygli á
   skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra og skýringu 6, þar sem greint er frá
   mati á verðbréfum. 

Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstrarfélag KB ABS 10,
nam þann 30. júní 2009 1.252 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum nr. 161/2002 um
fjármálafyrirtæki, er 20,9%, en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra
en 8,0%. Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Nýja Kaupþings banka
hf. og hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans. 

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag í móttöku
Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. að Borgartúni 19, 105 Reykjavík. 

Nánari upplýsingar um ársreikning KB ABS 10 veitir Eiríkur Magnús Jensson
sjóðstjóri í síma 444 7468.