|
|||
![]() |
|||
2013-04-22 18:13:40 CEST 2013-04-22 18:14:42 CEST REGULATED INFORMATION Marel hf. - ÁrsreikningurAfkoma fyrsta ársfjórðungs 2013Róleg byrjun á árinu með aukningu í nýjum pöntunum -- Tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2013 námu 158,0 milljónum evra, sem samsvarar 14,5% samdrætti samanborið við sama tímabil árið 2012 [184,9 milljónir evra]. -- EBITDA var 16,9 milljónir evra, sem er 10,7% af tekjum [Q1 2012: 27,4 milljónir evra]. -- Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 10,3 milljónum evra, sem samsvarar 6,5% af tekjum [Q1 2012: 21,1 milljón evra]. -- Hagnaður eftir skatta nam 5,7 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi [Q1 2012: 13,1 milljón evra]. Hagnaður á hlut (EPS) nam 0,78 evrusentum [Q1 2012: 1,80] . -- Sjóðstreymi er áfram traust og nettó vaxtaberandi skuldir námu 239,3 milljónum evra í lok fjórðungsins samanborið við 243,2 milljónir evra í lok árs 2012. -- Pantanabók stóð í 151,1 milljón evra í lok fjórðungsins [Q1 2012: 189.4 milljónir evra] sem er 20% hækkun frá árslokum 2012 [125,4 milljónir evra]. Tekjur Marel á fyrsta ársfjórðungi námu 158,0 milljónum evra sem endurspeglar lága stöðu pantanabókarinnar í upphafi ársins. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 6,5% sem er undir langtíma rekstrarmarkmiði félagsins um 10-12%. Hins vegar óx pantanabókin um 20% í fjórðungnum sem styður væntingar um auknar tekjur og betri arðsemi á seinni hluta ársins. Mikilvægir sölusamningar voru m.a. gerðir í Brasilíu, Kína, Mið-Austurlöndum og Rússlandi. Markaðsaðstæður í Evrópu eru áfram krefjandi en batamerki sjást í Bandaríkjunum. Theo Hoen, forstjóri: „Ársfjórðungurinn var í samræmi við væntingar okkar. Tekjur voru í lægri kantinum sem endurspeglar tiltölulega lága stöðu pantanabókarinnar í upphafi árs. Umtalsverð aukning á nýjum pöntunum og meira líf á mörkuðum okkar á tímabilinu gefa þó tilefni til bjartsýni. Enn sem fyrr mun Marel leggja ríka áherslu á hagræðingu og kostnaðaraðhald en við erum ekki að minnka umsvifin og erum í góðri stöðu til að auka sölu og markaðshlutdeild á næstunni. Eins og við tilkynntum í lok síðasta fjórðungs þá væntum við þess að ná 10-12% EBIT markmiði okkar á seinni hluta ársins 2013, að því gefnu að aðstæður á helstu mörkuðum okkar haldi áfram að batna.“ Staða pantanabókar aftur góð Eftir samdrátt í nýjum pöntunum á undanförnum fjórðungum var umtalsverður vöxtur á fyrsta ársfjórðungi en virði nýrra pantana nam 183,7 milljónum evra sem svipar til fyrsta ársfjórðungs 2012 [185,4 milljónir evra]. Þetta er 20% aukning sé litið til síðasta ársfjórðungs [152.3 m]. Nýjar pantanir voru umfram afgreiddar sem leiddi til þess að virði pantanabókarinnar í lok fjórðungsins nam 151,1 milljón evra samanborið við 125,4 milljónir evra í lok síðasta árs. Vöxt í pöntunum má einkum rekja til velgengni háþróaðra lausna félagsins, þekktra sem nýrra, og víðtæks sölu- og þjónustunets sem Marel hefur byggt upp um allan heim undanfarin ár. Horfur Marel gerir ráð fyrir hóflegum vexti árið 2013 að því gefnu að aðstæður á helstu mörkuðum batni á seinni hluta ársins. Með aukinni sölu á stöðluðum vörum og áherslu á rekstrarhagkvæmni á öllum sviðum væntir Marel þess að ná 10-12% EBIT markmiði sínu á seinni hluta ársins. Til meðal og lengri tíma litið, telur Marel að nýsköpun og sterk markaðsstaða um allan heim stuðli að góðum vexti og aukinni arðsemi. Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í pöntunum og tímasetningar stærri verkefna. Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta uppgjörsins en uppgjörstilkynning í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasíðu Marel: www.marel.com/2013Q1. Þar er m.a. að finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins. Kynningarfundur 23. apríl 2013 Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins miðvikudaginn 23. apríl kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast. Birtingardagar fyrir reikningsárið 2013 -- 2. ársfjórðungur 2013 24. júlí 2013 -- 3. ársfjórðungur 2013 23. október 2013 -- 4. ársfjórðungur 2013 5. febrúar 2014 Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar. Frekari upplýsingar veita: Helga Björk Eiríksdóttir, fjárfesta- og almannatengill. Símar: 563 8543 og 853 8543 Erik Kaman, fjármálastjóri. Sími: 563 8072. Um Marel Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila. Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi: Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku. |
|||
|