2014-04-30 20:01:20 CEST

2014-04-30 20:02:20 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Hækkun á hlutafé í Reginn hf.


Í samræmi við 84. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, tilkynnir Reginn
hf., að félagið hafi aukið hlutafé sitt um 128.700.000 krónur að nafnverði.
Heimild hluthafafundar er frá 11. febrúar þar sem samþykkt var að hækka
hlutaféð um 128.700.000 . Bréfin eru gefin út í tengslum við kaup félagsins á
100% hluti í Klasa fasteignum ehf.  Lögbundinn forgangsréttur hluthafa gildir
ekki um hið nýja hlutafé. Hlutafé í Regin fyrir hlutafjáraukninguna er
1.300.000.000 krónur að nafnvirði en verður að henni lokinni 1.428.700.000
krónur að nafnvirði. Hver hlutur gildir einu atkvæði og eru því atkvæði í
félaginu 1.428.700.000. Regin á ekki eigin hluti. Hinir nýju hlutir veita
réttindi í Regin frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar hjá Fyrirtækjaskrá.