|
|||
2009-11-26 11:11:06 CET 2009-11-26 11:12:04 CET REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir- Icelandair Group selur 20% hlut í tékkneska flugfélaginu Travel Service.Icelandair Group hf. gekk í gær frá sölu á um 20% hlut í tékkneska flugfélaginu Travel Service. Eftir viðskiptin á Icelandair Group um 30% hlut í Travel Service. Kaupandinn er Canaria Travel sem er eigu í sömu aðila og hafa verið meðeigendur Icelandair Group í Travel Service. Við söluna verður Travel Service hlutdeildarfélag Icelandair Group í stað þess að vera dótturfélag. Áhrif sölunnar á rekstrarreikning eru neikvæð um 0,9 milljarða króna og eigið fé lækkar um 1,5 milljarða króna. Heildareignir samstæðunnar lækka um 12 milljarða króna. Salan tryggir að Icelandair Group þarf ekki að koma að fjármögnun á vexti Travel Service. Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group: „Sem íslenskt félag sem vinnur að endurskipulagningu efnahagsreiknings eigum við ekki gott með að styðja við fjármögnun erlendra dótturfélaga okkar. Í raun hefur meirihlutaeignaraðild okkar truflað bankaviðskipti Travel Service í Tékklandi. Travel Service er gott félag og hefur skilað góðum rekstrarárangri en þó er ljóst að rekstrarumhverfi félagsins í vetur verður mjög krefjandi. Við teljum það heppilegast fyrir bæði félög að selja samstarfsaðilum okkar í Tékklandi 20% hlut þannig að Travel Service verði í meirihlutaeigu þeirra.“ Frekari upplýsingar veita: Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group sími: 896-1455 Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group sími: 665-8801 |
|||
|