|
|||
2024-05-21 19:19:37 CEST 2024-05-21 19:19:37 CEST REGULATED INFORMATION Síldarvinnslan hf - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)Síldarvinnslan birtir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2024 fimmtudaginn 23. maí 2024 eftir lokun markaða. Fjárfestakynning verður haldinn sama dag.Síldarvinnslan birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2024 eftir lokun markaða á fimmtudaginn kemur 23. maí. Fjárfestakynning verður þann sama dag kl. 16:00 og verður hún eingöngu send út á vefstreymi. Vefstreymið má nálgast á https://svn.is/fjarfestar/streymi/. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en kynning hefst. Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið fjarfestir@svn.is. Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, www.svn.is/fjarfestar/. Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum. Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason í síma 470-7000 eða á fjarfestir@svn.is. |
|||
|